Stofnun Leifs Eiríkssonar

Stjórnin

Upprunaleg stjórn

Núverandi stjórn

Þráinn Eggertsson
Þráinn Eggertsson er hagfræðiprófessor við Háskóla Íslands og útnefndur alþjóðlegur heiðursprófessor í stjórnvísindum við New York University. Starf hans beinist að stjórnvísindum og hagfræði eignaréttar í tengslum við hagsögu, efnahagsþróun og tæknibreytingar nútímans. Vísindagreinar hans hafa víða birst í fræðibókum og fræðitímaritum. Meðal bóka sem hann hefur skrifað eru Economic Behavior and Institutions (1990) og Imperfect Institutions: Possibilities and Limits of Reform (2005). Þráinn hlaut menntun sína í Englandi og Bandaríkjunum. Hann var gestaprófessor og stundaði rannsóknir í mörgum háskólum í Bandaríkjunum, þar á meðal við Washington University, Indiana University, Stanford University og Columbia University. Hann gegndi rannsóknarstöðu hjá Max Planck Institut í Þýskalandi og var gestaprófessor við Háskólann í Hong Kong. Á síðari árum ritstýrði hann ásamt Randy Calvert ritröðinni Political Economy of Institutions and Decisions sem Cambridge University Press gaf út.

John T. Casteen III (stjórnarformaður)
John Casteen varð rektor University of Virginia í ágúst 1990. Hann kenndi ensku við University of California (Berkeley) og University of Virginia og varð síðan menntamálaráðherra Virginíufylkis árið 1982. Því embætti gegndi hann til ársins 1985. Frá 1985 til 1990 var hann rektor University of Connecticut.

John T. Casteen var forstöðumaður bandaríska menntamálaráðsins og hefur átt sæti í mörgum öðrum stjórnum sem tengjast menntamálum. John Casteen hlaut nafnbótina Maður ársins í Virginíu árið 1993. Hann hefur hlotið fjölmargar heiðursviðurkenningar og verðlaun, meðal annars verðlaunin sem kennd eru við Jackson Davis (1993) á fylkjaráðstefnu Samtaka bandarískra háskólaprófessora (AAUP), heiðursdoktorsnafnbót frá Aþenuháskóla á Grikklandi (1996), hlaut nafnbótina Hollvinur fyrrverandi nemenda ársins 1998 í University of Virginia og gullmedalíu frá National Institute of Social Sciences (1998). John Casteen skrifar smásögur auk ritgerða og vísindagreina um miðaldabókmenntir, bókfræði og opinbera stefnumótun. Hann hlaut Mishima-skáldsagnaverðlaunin fyrir smásagnasafn sitt árið 1987.

John Casteen lauk þremur prófum í ensku frá University of Virginia (BA-prófi með hæsta láði árið 1965, meistaraprófi árið 1966 og doktorsprófi árið 1970). Hann gegndi embætti deildarforseta við inntökudeild University of Virginia frá 1975 til 1982.

Don Fry
Don Fry er sjálfstætt starfandi ritþjálfi sem vinnur með rithöfundum, ritstjórum og framkvæmdastjórum. Starfsferill Dons Frys er tvískiptur. Hann var prófessor í ensku við University of Virginia og State University of New York, Stony Brook. Hann sérhæfði sig í engilsaxneskum bókmenntum, gaf út þrjár bækur um Bjólfskviðu: The Beowulf Poet (1968), Beowulf and the Fight at Finnsburh: A Bibliography (1969) og Finnsburh Fragment and Episode (1974). Hann stundaði einnig rannsóknir á Skandinavíu til forna, ritstýrði Norse Sagas Translated Into English (1980) og var einn af ritstjórum Medieval Scandinavia, an Encyclopedia (1993). Árið 1984 skipti Don Fry yfir í blaðamennsku og stjórnaði ritsmíða- og siðfræðideild í Pounter Institute í St. Petersburg í Flórída þar sem hann ritstýrði ársritinu Best Newpaper Writing. Hann gaf út Believing the News (1986), Color In American Newspapers ásamt Mario Garcia og Coaching Writers ásamt Roy Peter Clark (2. útgáfa 2003). Hann hefur verið sjálfstætt starfandi ritþjálfi frá árinu 1994 og hugmyndir hans um þjálfun í ritsmíðum eru þekktar um heim allan, einkum í Singapúr, Suður-Afríku og Skandinavíu. Hann hefur átt sæti í stjórn Stofnunar Leifs Eiríkssonar frá upphafi.

Halla Tómasdóttir
Halla Tómasdóttir er starfandi stjórnarformaður og ein af stofnendum Auðar Capital. Halla lét af störfum sem framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands til að stofna Auði Capital. Hún var 6 ár við Háskólann í Reykjavík og var lykilþátttakandi í uppbyggingu háskólans, sem stofnandi og stjórnandi Stjórnendaskólans og Auðar í krafti kvenna og starfaði einnig sem lektor. Nú situr hún í stjórn Háskólans í Reykjavík. Halla var við nám og störf í Bandaríkjunum í 10 ár. Hún hefur BSC gráðu í viðskiptafræði með áherslu á mannauðsstjórnun og MBA gráðu í alþjóðaviðskiptum. Hún hóf starfsferil sinn í Bandaríkjunum hjá M&M/Mars og síðar starfaði hún hjá Pepsi Cola með mannauðsteymi þeirra. Halla hefur verið kennari og ráðgjafi margra fyrirtækja, og nemenda á öllum aldri. Áhugamál hennar eru hegðun í fyrirtækjum (organizational behaviour), frumkvöðlastarf og nýsköpun. Hún hefur setið í stjórnum margra fyrirtækja, þar á meðal Kauphallarinnar, Sjóvár, stærsta tryggingafélags Íslands, Vistor, stærsta lyfjainnflutningsfyrirtækis á Íslandi og Calidris, fyrirtæki sem sérhæfir sig í hugbúnaðarlausnum fyrir flugfélög. Hún er nú varafulltrúi í bankaráði Seðlabanka Íslands. Halla á tvö börn, Tómas Bjart og Auði Ínu.

Richard S. Williams, Jr.
Richard Williams er jarðfræðingur með BS- og MS-gráður frá University of Michigan og doktorspróf frá Pennsylvania State University. Rannsóknir hans á sviði jarð- og jöklafræði felast í því að nota tækni sem byggist á mælingum úr lofti og utan úr geimnum til að rannsaka jökla og jarðfræðilegar umbreytingar. Hann hefur sérstakan áhuga á Íslandi og hefur, ásamt íslenskum samstarfsmönnum, rannsakað eldsumbrot, jarðhræringar og afkomu íslenskra jökla frá því um miðjan sjöunda áratuginn. Richard Williams hefur m.a. unnið fyrir eftirfarandi aðila: Atlantic-Richfield Co., Raytheon, HRB-Singer, Rannsóknarstofnun bandaríska flughersins í Cambridge (sem liðsforingi) og Landmælingar Bandaríkjanna (USGS). Richard Williams er fyrrum varaformaður rannsóknar- og könnunarnefndar National Geographic Society, fyrrverandi sérfræðingur í jarðfræðirannsóknum hjá Landmælingum Bandaríkjanna, og tilheyrði sérfræðingateymi Woods Hole Research Center. Hann er félagi í Cosmos Club og heiðursfélagi í Explorers Club, bréfafélagi í Vísindafélagi Íslendinga, félagi í Geological Society of America, og félagi í American Association for the Advancement of Science. Richard Williams er höfundur að meira en 300 ritum. Hann er aðalritstjóri 11 binda verks Landmælinga Bandaríkjanna, Professional Paper 1386-A-K, Satellite Image Atlas of Glaciers of the World. Hann er meðhöfundur ritraðarinnar Coastal-Change and Glaciological Maps of Antarctica. Árið 2004 gáfu hann og Oddur Sigurðsson út Icelandic Ice Mountains, enska þýðingu á Jöklariti Sveins Pálssonar frá 1795 með skýringum, útgefandi Hið íslenska bókmenntafélag. Árið 2008 gáfu þeir út Geographic Names of Iceland’s Glaciers: Historic and Modern og vinna nú að nýrri samantekt, Jöklar Íslands.

Fulltrúar